Aðild

Aðildarpakkarnir okkar bjóða upp á hámarkssveigjanleika. Þeir veita þér aðgang að setustofum, sameiginlegum vinnusvæðum og skrifstofum þegar þú þarft á að halda. Og með mánaðargjaldi þar sem allt er innifalið hefur sveigjanleg vinna aldrei verið auðveldari.

Kaupa núna

Stærstu fyrirtæki heims bera traust til okkar

Aðild

Fáðu aðgang að setustofum, sameiginlegum vinnusvæðum og einkaskrifstofum einn dag í senn. Eða veldu mánaðarpakka með 5, 10 eða ótakmörkuðum dögum.

Setustofupakkar

Virtual OfficeLíttu inn þegar þú þarft
Fáðu aðgang að stærsta setustofuneti heims. Farðu á staðinn sem er næstur þér, stingdu í samband og byrjaðu að vinna.

Vinnusvæðapakkar

Virtual OfficeTaktu þátt í samfélagi svipað þenkjandi fólks
Veldu á milli þúsunda spennandi sameiginlegra vinnusvæða og myndaðu tengsl við samfélag svipað þenkjandi fólks.

Skrifstofupakkar

Virtual OfficeSkrifstofurými þegar þú þarft á því að halda
Þarftu öðru hvoru aðgang að fagmannlegri og fullbúinni skrifstofu sem þú hefur út af fyrir þig? Þetta er pakkinn fyrir þig.

Fyrirtækjapakkar

Virtual OfficeSérsniðnar lausnir
Fullkomlega sveigjanlegir, hagkvæmir pakkar sem veita fyrirtækjum aðgang að stærsta neti sveigjanlegra vinnusvæða í heimi.

Vinnusvæði, þar sem og þegar þú þarfnast þess

Með aðild að Regus færðu aðgang að vinnusvæðum á þúsundum staða um allan heim. Njóttu frelsisins sem felst í að kíkja inn í setustofu, taka skrifstofu á dagleigu eða nota opin, sameiginleg vinnusvæði þegar þörf krefur. Greiddu fyrir daginn á afsláttarverði eða veldu 5, 10 eða ótakmarkaðan dagafjölda á mánuði.

Kaupa núna >

Allar nauðsynjarnar og fleira til.

Þátttaka í blómlegu og samhentu samfélagi svipað þenkjandi fagfólks er bara byrjunin. Öllum aðildarlausnunum okkar fylgja líka margvísleg virðisaukandi fríðindi sem gera vinnuna enn ánægjulegri og árangursríkari.

  • GlobalAðgangur að setustofum á neti Regus um allan heim
  • Gym fitness roomSérstökum fríðindum frá samstarfsaðilum á sviði heilsu og lífsstíls
  • LoungesAðgangur að DragonPass og PPG-setustofum á flugvöllum
  • DiscountAfsláttum af fyrirtækjaþjónustu frá alþjóðlegum samstarfsaðilum
  • Transport distanceAðgangur að Regus Express á alþjóðlegum samgöngumiðstöðvum
  • NetworkReglulegum tengslamyndunarviðburðum og félagslegum viðburðum

Þú getur bókað og haft umsjón með öllu í appinu okkar.

Í Regus-appinu getur þú bókað pláss á hvaða vinnusvæði sem er. Það auðveldar þér að sinna rekstrinum því þú getur haft umsjón með þínum reikningi og þínum bókunum á einum og sama staðnum. Og þar sem þú sérð hvað er laust í rauntíma getur þú bókað þitt skrifborð eða skrifstofu samdægurs, eða á ferð og flugi.

Sveigjanleg vinna, áþreifanlegur ávinningur

Afköst aukast þegar starfsfólk hefur frelsi til að velja hvar það vinnur. Fyrirtækjapakkarnir okkar bjóða upp á hámarkssveigjanleika og hagkvæmni auk þess að innihalda sérstaka ráðgjafarþjónustu til að styðja við umskipti yfir í sveigjanlegt vinnufyrirkomulag.

Svör við spurningum um aðild

Teymið okkar getur svarað öllum þínum spurningum.
Með setustofuaðild færðu ótakmarkaðan aðgang að öllum setustofunum okkar hvenær sem þú vilt. Það er engin þörf á að bóka fyrirfram - þú lítur bara við á einhverjum af mörg þúsund staðsetningum okkar í miðborgum, iðnaðarsvæðum, samgöngumiðstöðvum og þjónustumiðstöðvum um allan heim. Þú getur líka valið aðild sem felur í sér aðgang að sameiginlegu vinnusvæði í fimm, tíu eða ótakmarkaða daga í mánuði. Veistu ekki hve marga daga þú þarft? Ekkert mál, þú skráir þig bara á Regus-reikningnum og bókar eftir þörfum í gegnum appið.
Þegar þú hefur skráð þig geturðu notað skrifstofu, fundarherbergi eða sameiginlegt vinnusvæði eftir þörfum með því einfaldlega að bóka í appinu okkar. Ef þú ert með aðild að sameiginlegum vinnusvæðum eða skrifstofum geturðu bókað fyrirfram til að tryggja þér pláss, eða bara komið þegar þú þarft að vinna, þegar opið er á viðkomandi stað.
Ef þú stofnar reikning færðu 10% afslátt af öllum bókunum á fundarherbergjunum, skrifstofum eða sameiginlegu vinnusvæði í gegnum appið. Þú getur líka séð allar bókanir og stjórnað greiðslum í gegnum reikninginn.
Við getum ekki ábyrgst að þú getir notið sömu skrifstofuna marga daga í röð þar sem þeim er úthlutað samkvæmt reglunni fyrstur kemur, fyrstur fær, en þú getur beðið samfélagsteymið á staðnum um að reyna að taka frá sömu skrifstofuna fyrir þig þá daga sem þú þarft. Við viljum endilega koma til móts við þig.
Nei, því miður. Þú þarft að nota dagana þína í þeim mánuði sem þeim var úthlutað.
Já, þú getur tekið einn gest með þér í hverri heimsókn.
Þú getur breytt aðildinni þegar kominn er tími á endurnýjun - láttu okkur bara vita. Þú getur líka uppfært hvenær sem er.
Já, alltaf þegar þú bókar sameiginlegt vinnusvæði eða einkaskrifstofu færðu líka ótakmörkuð afnot af setustofunni.
Upphafsdagur samnings getur verið hvenær sem er. Greiðslutímabilið miðast við upphaf hvers mánaðar. Því verður fyrsti reikningurinn gjaldfærður hlutfallslega frá upphafsdegi til loka þess mánaðar. Öllum samningum lýkur síðasta dag mánaðarins.
Ef þú gerir til dæmis tólf mánaða samning, sem hefst þann 15. mars, rukkum við þig hlutfallslega fyrir tímabilið 15. mars til marsloka. Tólf mánaða samningurinn er þá í gildi frá 1. apríl til og með 31. mars árið eftir.

* Allt birt verð gildir þegar fyrirspurn er send, miðað við 24 mánaða samninga. Verð getur tekið breytingum og er mismunandi eftir því hvaða vörur og þjónusta eru valdar. Verð fyrir skrifstofur og sameiginleg vinnusvæði á við um hvern einstakling á mánuði og fer eftir framboði hverju sinni. Skilmálar eiga við.