Fyrirtæki

Enterprise

Fyrirtækjalausnirnar okkar eru sérsniðnar að þörfum stærri fyrirtækja. Þjónusta okkar um allan heim gerir starfsfólki þínu kleift að vinna hvar sem það þarf. Gefðu þeim aðgang að einkaskrifstofum, sameiginlegum vinnusvæðum, fundarherbergjum og setustofum klukkustund, dag eða lengur í senn. Og hafðu umsjón með reikningi fyrirtækisins á einum og sama staðnum, með mánaðarlegum skýrslum, notkunargögnum og aðgangsstýringu.
phone iconHringdu+44 800 756 2918
Fá tilboð
Fyrirtæki

Virkjaðu starfsfólkið þitt með sveigjanlegu vinnusvæði sem er hægt að bóka á ferðinni. Hafðu umsjón með reikningnum þínum á einum og sama staðnum með einfaldri innheimtu og skýrslugjöf.

Ávinningur meðlima

Vinnusvæðið sem meðlimir þurfa, þegar þeir þurfa það

Með aðild gerirðu starfsfólki fyrirtækisins kleift að vinna eins og það vill, hvar og hvenær sem það vill. Með fyrirtækjareikningi fær starfsfólkið þitt aðgang að einkaskrifstofum, fundarherbergjum, sameiginlegu vinnusvæði og setustofum – á þúsundum staða í öllum borgum, bæjum og samskiptamiðstöðvum um allan heim. Allir meðlimir fá:

  • GlobalAðgangur að setustofum á neti Regus um allan heim
  • Gym fitness roomSérstökum fríðindum frá samstarfsaðilum á sviði heilsu og lífsstíls
  • AðildSamstarf við DragonPass og PPG fyrir aðgang að setustofum á flugvöllum
  • DiscountAfsláttum af fyrirtækjaþjónustu frá alþjóðlegum samstarfsaðilum
  • Transport distanceAðgangur að Regus Express á alþjóðlegum samgöngumiðstöðvum
  • NetworkReglulegum tengslamyndunarviðburðum og félagslegum viðburðum

Rekstrarlegur ávinningur

Hámarks sveigjanleiki, lítill kostnaður

Aðildargjöld alls starfsfólks eru innheimt með einum einföldum, gagnsæjum reikningi þar sem sjá má upplýsingar um notkun í hverjum mánuði. Með aðild dregur þú úr áhættu og heildarkostnaði við vinnusvæðið með því að útrýma upphafskostnaði.

  • calculatorBorgaðu aðeins fyrir rýmið sem teymið þitt þarf á að halda
  • No capitalEngin stór útgjöld
  • Lower costMinni rekstrarkostnaður
  • calendarSkýrslur yfir mánaðarlega notkun og útgjöld
  • Flexible paymentSveigjanlegar greiðsluáætlanir
  • Low riskKostnaðaröryggi og lítil áhætta

Tölum um fyrirtækjalausnir

Ráðgjafar okkar eru reiðubúnir að hjálpa ef þú vilt vita meira um verðlagningu og hvernig aðild getur hjálpað fyrirtækinu þínu.

Svör við spurningum um fyrirtækjareikninginn

Teymið okkar getur svarað öllum þínum spurningum.
Við bjóðum upp á þjálfun fyrir starfsmanninn sem er falið að stýra áætluninni. Við getum líka boðið upp á viðbótarnáms og -ítarefni sem stjórnandi fyrirtækjareikningsins getur úthlutað til starfsfólks sem verður meðlimir.
Já – það er hægt að nota fyrirframgreidda inneign á fyrirtækjareikningnum í hundruðum landa því við erum með vinnusvæðaþjónustu um allan heim.
Hægt er að hafa samband við fyrirtækjaþjónustuteymið okkar hvenær sem er á
Meðlimir þurfa ekki að bóka aðgang að setustofuþjónustunni okkar um allan heim – þeir geta bara mætt og fengið sér sæti. Við mælum þó með því að fundarherbergi, sameiginleg vinnusvæði og skrifstofur séu bókuð. Í appinu okkar eru rauntímaupplýsingar um það sem er laust og það er hægðarleikur að bóka.
Nei, meðlimir á fyrirtækjareikningnum þínum eru skráðir undir nafni og því geta ekki aðrir notað aðildina þeirra. Á mörgum vinnusvæðum þarf líka að framvísa skilríkjum með mynd við innritun.

Fleiri leiðir til að vinna

  • Skrifstofurými

    Útvegaðu þínu fólki stað til að vinna markvisst, dafna og vaxa, en láttu okkur um smáatriðin.
    Fræðast meira
  • Sameiginleg vinnusvæði

    Vertu hluti af lifandi, sameiginlegu vinnusvæði með sérhönnuðum lausnum eða sameiginlegri aðstöðu.
    Fræðast meira
  • Fjarskrifstofur

    Gerðu þitt fyrirtæki sýnilegt þar sem þér hentar að vera, á frábærum rekstarstaðsetningum.
    Fræðast meira
  • Aðild

    Fáðu aðgang að vinnusvæðum og setustofum okkar um allan heim, eins oft og þú þarft.
    Fræðast meira
  • Fundarherbergi

    Fullbúin herbergi fyrir starfsmannaþjálfunina, viðtalið eða sölukynninguna, hvar sem þú þarft að nálgast rýmið.
    Fræðast meira

* Allt birt verð gildir þegar fyrirspurn er send, miðað við 24 mánaða samninga. Verð getur tekið breytingum og er mismunandi eftir því hvaða vörur og þjónusta eru valdar. Verð fyrir skrifstofur og sameiginleg vinnusvæði á við um hvern einstakling á mánuði og fer eftir framboði hverju sinni. Skilmálar eiga við.