Kalkofnsvegur 2
Kalkofnsvegur 2 3. hæð 101, Reykjavík, 101, ISL
Byggðu upp reksturinn á Kalkofnsvegi 2 í grennd við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu, glæsilega byggingu úr stáli og gleri sem er nýtt kennileiti Reykjavíkur. Húsið tengir saman nálæg atvinnuhverfi og býður upp á fjölmörg tækifæri til tengslamyndunar.
Hægt er að koma miklu í verk í nútímalegu rýminu. Líkamsræktarstöð og setustofa í byggingunni gera þér kleift að halda einbeitingu og slaka á. Nýttu þér staðsetningu byggingarinnar, á hafnarsvæðinu, þar sem finna má fjölda vinsælla verslana og veitingastaða.
Kirkjusandur
Kirkjusandur, Hallgerðargata 13, Reykjavík, 101, ISL
Láttu til þín taka í Reykjavík, höfuðborg og stærstu borg Íslands. Tryggðu þér sveigjanlegt skrifstofurými við Kirkjusand og njóttu þess að horfa yfir Faxaflóann fagra. Aðgengi að þessari glæsilegu skrifstofubyggingu í hjarta viðskiptahverfis borgarinnar er eins og best verður á kosið – Reykjanesbrautin er í aðeins mínútu fjarlægð frá bílastæðunum við húsið. Svo er hægt að vera umhverfisvænn og taka strætó frá Lækjartorgi að stoppistöðinni beint fyrir utan skrifstofuna. Á Kirkjusandi finnur þú allt sem þú þarft, hvort sem þú ert einyrki í leit að einkaskrifstofu eða hluti af hóp í leit að opnu samstarfsrými.
Vörumerkið þitt nýtur góðs af því þegar starfsfólk okkar tekur á móti viðskiptavinum þínum og leiðir þá inn á haganlega hannað sameiginlega vinnusvæðið okkar með útsýni yfir Snæfellsjökul og Reykjavíkurhöfn. Þú getur einbeitt þér að vinnunni og gefið sköpunargáfunni lausan tauminn, þökk sé þægilegum vinnuhúsgögnum, afslappandi vinnustofusvæðum og fullbúnum eldhúsum. Gakktu frá viðskiptum að loknum vel heppnuðum fundi í einum af glæsilegu fundarherbergjunum okkar eða myndaðu sambönd við hugvitssama heimamenn í Hörpu, sem er í aðeins fjögurra mínútna akstursfjarlægð. Eftir vel heppnaða vinnuviku er svo hægt að kanna veitingastaði og kaffihús í nágrenninu og gæða sér á ósviknu íslensku góðgæti.
Sky Centre
Suðurhrauni 10, Reykjavík, 105, ISL
Komdu hlutunum í verk í fyrsta flokks sveigjanlegu vinnurými Sky Centre. Rýmið er stílhreint, nýlega innréttað og er í miðju iðandi iðnaðarhverfi. Þetta er frábær staður til að byggja upp fyrirtækið og viðskiptatengslin.
Skapaðu fyrirtækinu sess í rými sem endurspeglar þínar þarfir, hvort sem það er eitt skrifborð eða heil skrifstofa. Hugmyndavinnan og samstarfið fer fram í sérsniðnum fundarherbergjum og svo er hægt að bera saman bækur sínar yfir rjúkandi kaffibolla í eldhúsinu. Hafið og fjöllin eru innan seilingar svo þú getur alltaf leitað í náttúruna til að slaka á eftir langan dag.
Aðalgata 60
60 Aðalgata Reykjanesbær, Reykjavik, 230, ISL
Komdu fyrirtækinu á kortið með sveigjanlegum vinnustað í hjarta Reykjanesbæjar, einu stærsta sveitarfélagi Íslands. Taktu þátt í vaxandi samfélagi fagfólks á þessu framsækna svæði og starfaðu í nálægð við metnaðarfull sprotafyrirtæki og rótgróin fyrirtæki á öllum sviðum atvinnulífsins.
Hámarkaðu afköstin í fallegu og sérhönnuðu skrifstofurými sem snýr að jarðhæð Courtyard by Marriott-hótelsins. Hér er einfalt að taka á móti gestum þökk sé fjölbreyttri þjónustu á staðnum og frábærum samgönguleiðum innan Íslands sem utan.
Skrifstofupakkar með reglulegum aðgangi.
Skrifstofuaðildir bjóða upp á aðgang að staðsetningum í öllum stærstu borgum og bæjum. Lágt verð og sveigjanlegir skilmálar.
Flyttu til Reykjavíkur, fallegu höfuðborgar Íslands, þar sem þú getur fengið skrifstofu með fullri þjónustu og leyft fyrirtækinu að vaxa. Vinnusvæði okkar eru búin nútímaþægindum og eru staðsett í miðju viðskiptasamfélagi Reykjavíkur.