Persónuverndarstefna

Persónuverndarstefna

Kynning

  • Okkur er annt um persónuvernd þína og öryggi persónuupplýsinga þinna sem við vinnum úr eða meðhöndlum. Þessi persónuverndarstefna tilkynnir þér um persónuverndaraðgerðir okkar sem tengjast samskiptum okkar við þig á netinu, í síma og þegar þú heimsækir miðstöðvar okkar þar sem við höfum sett upp öryggismyndavélar.
  • Vinsamlegast lestu persónuverndarstefnuna vandlega og skoðaðu þessa síðu reglulega til að kynna þér þær breytingar sem hugsanlega hafa verið gerðar. (Við kunnum að gera breytingar á þessari persónuverndarstefnu hvenær sem er og tilkynnum þær með því að birta breyttu skilmálana á þessu vefsvæði. Allir uppfærðir skilmálar taka sjálfkrafa gildi á þeirri dagsetningu sem gefin er upp í birtu persónuverndarstefnunni, nema annað sé tekið fram.)

Vefsvæði sem falla undir þessa persónuverndarstefnu

Persónuverndarstefnan gildir fyrir öll vefsvæði og lén í okkar eigu, þar með talin öll svæðis- eða landsbundin vefsvæði (saman nefnd „vefsvæðin“). Vefsvæðin geta innihaldið tengla á vefsvæði þriðju aðila til að auka þægindi og upplýsingagjöf til notenda. Með því að smella á slíka tengla yfirgefur þú vefsvæðin. Við höfum ekki stjórn á vefsvæðum þriðju aðila eða persónuverndarráðstöfunum þeirra, sem kunna að vera aðrar en þær sem við beitum. Þessi persónuverndarstefna nær ekki yfir neinar persónuupplýsingar sem þú velur að gefa öðrum ótengdum þriðju aðilum. Við höfum hvorki eftirlit með né stjórn á þeim upplýsingum sem slík vefsvæði safna eða persónuverndarráðstöfunum nokkurra þriðju aðila og við berum enga ábyrgð á starfsvenjum þeirra eða innihaldi vefsvæða þeirra.

Gerð upplýsinga sem við söfnum og notum

  • Í þessari stefnu merkja hugtökin „persónuupplýsingar“ og „persónuleg gögn“ upplýsingar um einstakling sem hægt er að auðkenna með þeim og falla undir lög um persónuvernd í því lögsagnarumdæmi sem þú býrð í. Í sumum lögsagnarumdæmum falla starfstengdar samskiptaupplýsingar ekki undir „persónuupplýsingar“ eða „persónuleg gögn“.
  • Vefsvæðin safna upplýsingum með ýmsum ólíkum aðferðum og í mismunandi tilgangi sem lýst er hér á eftir. Ef þú ákveður að skrá þig hjá einhverju vefsvæða okkar til að fá uppfærslur frá okkur, stjórna reikningnum þínum og/eða nýta þér sjálfsafgreiðsluþjónustugáttina okkar verðurðu beðin(n) um að gefa upp samskiptaupplýsingar (nafn, heimilisfang, símanúmer, netfang, einkvæmt innskráningarnafn og aðgangsorð). Við notum þessar upplýsingar til að framfylgja lögmætum hagsmunum okkar, veita þjónustuna og/eða til að hafa samband við þig í tengslum við þjónustuna sem þú hefur sýnt áhuga á á vefsvæði okkar.
  • Vefsvæðin safna sjálfkrafa tæknilegum upplýsingum um heimsókn þína (svo sem gerð vafrans sem þú notar, internetþjónustuveitu, gerð verkvangs, IP-tölur, tilvísunar-/lokunarsíður, stýrikerfi, dagsetningar-/tímastimpil). Við söfnum þessum upplýsingum til skýrslugerðar um vefsvæðin, til að greina þróun og vandamál í tengslum við þjóna okkar og til að stjórna vefsvæðunum, rekja ferli og notkun notenda, sem og til að afla víðtækra lýðfræðilegra upplýsinga. Sjá frekari upplýsingar í „Kökur og önnur stafræn merki“ hér á eftir.
  • Þú hefur einnig val um að veita lýðfræðilegar upplýsingar (svo sem um gerð, stærð og staðsetningu fyrirtækis o.s.frv.). Við notum þessar lýðfræðilegu upplýsingar til að gera okkur grein fyrir þörfum þínum og áhugasviðum og til að geta veitt þér sérsniðna og betri upplifun á vefsvæði okkar. Fyrirtækjasamstæðan notar upplýsingarnar til að vinna úr pöntunum þínum, gera þér kleift að taka þátt í kynningartilboðum (í samræmi við kjörstillingar þínar fyrir markaðsefni) og til að geta veitt þér þjónustu.
  • Í símtölum við okkur gætir þú veitt okkur persónuupplýsingar. Slík símtöl kunna að vera hljóðrituð í æfingaskyni og fyrir gæðaeftirlit. Þú færð upplýsingar um það í upphafi símtalsins hvort símtalið verður tekið upp og þá geturðu ákveðið hvort þú viljir halda áfram eða ljúka símtalinu ef upptakan veldur þér óþægindum.
  • Ef þú heimsækir miðstöð okkar þar sem öryggismyndavél hefur verið sett upp kann að vera að þú komir fyrir á myndupptöku í öryggismyndavélakerfinu okkar.

Hvernig við meðhöndlum upplýsingar sem við söfnum

  • Á vefsvæðunum geturðu pantað vörur og þjónustu, óskað eftir upplýsingum eða gerst áskrifandi að markaðs- eða stuðningsefni. Við munum óska eftir ákveðnum upplýsingum frá þér til að þú getir keypt vöru eða þjónustu frá okkur, en upplýsingarnar verða nýttar til að uppfylla samning okkar. Þú þarft að gefa upp samskiptaupplýsingar (svo sem nafn, netfang og sendingarheimilisfang) ásamt greiðsluupplýsingum (svo sem kreditkortanúmer, heimilisfang greiðanda og gildistíma korts). Greiðsluupplýsingarnar sem við fáum frá þér eru eingöngu notaðar til að innheimta greiðslur frá þér fyrir þær vörur og þjónustu sem þú kaupir.
  • Ef við fáum kreditkortaupplýsingar frá þér notum við þær eingöngu við úrvinnslu greiðslunnar og til að koma í veg fyrir svik. Kreditkortaupplýsingar og önnur álíka viðkvæm persónuleg gögn eru ekki notuð í neinum öðrum tilgangi innan samstæðunnar án sérstaks samþykkis frá þér. Við geymum ekki kreditkortaupplýsingar þínar eftir að úrvinnslu greiðslu er lokið nema þú hafir veitt okkur leyfi til að geyma kreditkortaupplýsingar þínar fyrir síðari kaup.
  • Hugsanlega þurfum við að deila upplýsingum með þriðju aðilum til að uppfylla gildandi lagaskilyrði. Við gætum til dæmis þurft að gefa upp upplýsingar í kjölfar dómsúrskurðar, stefnu eða heimildar. Að auki kunnum við, samkvæmt gildandi lögum, að veita sjálfviljug upplýsingar til að aðstoða við rannsóknir löggæsluaðila eða í tilfellum þegar þess gerist þörf til að vernda kerfi okkar, fyrirtæki eða réttindi annarra.
  • Við kunnum einnig að nota samskiptaupplýsingar þínar til að senda þér upplýsingar um aðrar vörur og þjónustu fyrirtækjasamstæðunnar, svo sem upplýsingar um fundarherbergi, fjarskrifstofur, bráðabirgðaskrifstofur, skrifstofur, sameiginleg vinnusvæði og aðild, að því gefnu að þú hafir veitt samþykki fyrir því í samræmi við gildandi lög. Ef þú vilt ekki fá slíkar reglulegar tilkynningar með kynningarefni getur þú haft samband við okkur og beðið okkur að uppfæra kjörstillingar þínar (sjá „Valkostir og afþökkun“ hér á eftir).

Rafræn samskipti

  • Þegar þú hefur skráð þig munum við senda þér kynningartölvupóst til að staðfesta notandanafnið og aðgangsorðið þitt. Við svörum einnig spurningum þínum, veitum þér þjónustuna sem þú óskar eftir og höfum umsjón með reikningnum þínum. Við munum hafa samband við þig í tölvupósti eða síma og gerum allt sem við getum til að virða kjörstillingar þínar.
  • Við munum einnig senda þér upplýsingar um nýjar vörur, þjónustu, sérstök sparnaðartilboð, kynningar og almennar upplýsingar í samræmi við kjörstillingar þínar fyrir markaðsefni. Ef þú vilt ekki fá þessar upplýsingar getur þú valið að afþakka frekari póstsendingar (sjá „Valkostir og afþökkun“ hér á eftir).
  • Ef þú óskar eftir að gerast áskrifandi að fréttabréfum okkar munum við nota nafn þitt og netfang til að senda þér fréttabréf. Þú getur skráð þig í áskrift að þessum fréttabréfum á skráningarsíðunni okkar. Þú getur hætt í áskriftinni hvenær sem er (sjá „Valkostir og afþökkun“ hér á eftir). Við munum senda þér tilkynningar varðandi þjónustuna eftir þörfum, en slíkar tilkynningar eru ekki markaðs-/kynningarefni. Þú getur gert reikninginn þinn óvirkan á vefsvæðinu ef þú vilt ekki fá þessar tilkynningar.
  • Athugaðu að við deilum ekki netfangi þínu með samstarfsaðilum okkar. Þó gætum við sent þér tilboð fyrir hönd samstarfsaðila okkar – sjá „Gerð upplýsinga sem við söfnum og notum“ hér að framan. Þú getur valið að afþakka tilboð send í tölvupósti eins og lýst er hér á eftir.

Deiling upplýsinga og sending þeirra á milli landa

  • Við gerum samninga við þjónustuveitendur og birgja sem eru þriðju aðilar um að afhenda fullgerðar vörur, þjónustu og lausnir fyrir viðskiptavini, eins og lýst er hér að framan. Við gætum þurft að deila persónuupplýsingum þínum með slíkum þriðju aðilum til að gera kleift að veita þér umbeðnar vörur, þjónustu og viðskiptavinalausnir. Að auki gætum við þurft að deila persónuupplýsingum þínum með öðrum meðlimum í samstæðu okkar í þeim tilgangi að sameina gögn, geyma þau, einfalda umsýslu með upplýsingar viðskiptavina, til skýrslugerðar, til að afhenda fullgerðar vörur, þjónustu og lausnir fyrir viðskiptavini og til annarrar innri meðferðar (sem gæti falið í sér flutning gagnanna út fyrir EES-svæðið og Kanada til Bandaríkjanna og annarra landa).
  • Við munum eingöngu deila persónulegum upplýsingum þínum með eftirfarandi hætti og í samræmi við gagnaverndarlög.

Kökur og önnur stafræn merki

Við notum kökur og önnur stafræn merki til að safna upplýsingum með sjálfvirkum hætti. Kökur og stafræn merki eru smáar tölvuskrár sem geta verið vistaðar á harða drifinu í tölvunni þinni eða innfelldar á vefsvæðum okkar. Þær gera okkur kleift að bera kennsl á þig og rekja heimsóknir þínar á vefsvæðið. Til dæmis notum við kökur í afgreiðsluferlinu þegar þú bókar skrifstofurými til að geta fylgst með pöntuninni í hverju skrefi bókunarinnar. Við notum hugsanlega þjónustu þriðju aðila til að safna og vinna úr persónuupplýsingum í gegnum kökur og önnur stafræn merki fyrir okkar hönd. Þú getur gert kökur óvirkar í tölvunni þinni með því að breyta stillingunum í kjörstillingum eða valmynd vafrans sem þú notar. Ef þú kýst að gera kökur óvirkar gæti aðgangur þinn að ákveðnum svæðum á vefsvæðinu lokast.

Persónuvernd barna

Við leggjum ríka áherslu á persónuvernd barna og við hvetjum foreldra og forráðamenn til að taka virkan þátt í aðgerðum og áhugamálum barna á netinu. Við söfnum ekki vísvitandi upplýsingum frá börnum yngri en 13 ára og beinum ekki vefsvæðum okkar að börnum undir 13 ára aldri.

Valkostir og afþökkun

Við gefum þér kost á því að fá ýmsar upplýsingar til viðbótar við vörur okkar og þjónustu. Þú getur gerst áskrifandi að efni sem veitir upplýsingar um ákveðna vöru eða þjónustu og markaðsefni sem á við fyrir alla samstæðuna. Slíkt efni getur falið í sér upplýsingar um nýjar vörur, sértilboð eða boð um þátttöku í markaðsrannsókn. Ef þú vilt ekki lengur fá fréttabréf og/eða kynningarefni frá okkur geturðu afþakkað það með því að fylgja leiðbeiningunum sem gefnar eru í öllum fréttabréfum eða samskiptum, til dæmis með því að hafa samband við okkur á crm.suppressions@regus.com.

Nákvæmni upplýsinga og aðgangur þinn að þeim, auk annarra réttinda

Í sumum lögsagnarumdæmum, einkum í Bretlandi og innan EES-svæðisins, átt þú rétt á eftirfarandi við ákveðnar kringumstæður: rétt til aðgangs; rétt til leiðréttingar; rétt til eyðingar; rétt til takmörkunar á vinnslu; rétt til gagnaflutnings; og rétt til að andmæla meðferð á persónugögnum þínum. Þessi réttindi kunna að vera takmörkuð, til dæmis ef við þyrftum að gefa upp persónuupplýsingar annars einstaklings eða brjóta gegn persónuverndarréttindum annarra til að uppfylla beiðni þína, eða ef þú biður okkur um að eyða upplýsingum sem lög krefjast að við varðveitum eða ef mikilvægir lögmætir hagsmunir felast í því að við geymum þær. Ef þú vilt nýta einhver þessara réttinda þinna skaltu hafa samband við gdpr@regus.com. Ef þú ert með vandamál sem þarfnast úrlausnar áttu rétt á að leggja fram kvörtun til gagnaverndaryfirvalda þar sem þú býrð, starfar eða þar sem þú telur að brot hafi átt sér stað.

Öryggi upplýsinganna þinna

Við getum hvorki tryggt né ábyrgst öryggi netþjóna okkar eða tryggt að upplýsingarnar sem þú veitir í gegnum vefsvæðið komist ekki í hendur annarra þegar þær eru sendar um internetið. Við fylgjum almennum viðurkenndum tæknistöðlum innan geirans til að vernda persónuupplýsingar sem við fáum, bæði við flutning og þegar við höfum veitt þeim viðtöku. Þegar þú færir inn viðkvæmar upplýsingar (svo sem kreditkortaupplýsingar) á skráningar- eða pöntunareyðublöðum okkar, dulkóðum við þær með SSL-tækni (Secure Socket Layer). Þegar við vinnum úr persónuupplýsingum vegna markaðssetningar eða með þínu samþykki vinnum við úr upplýsingunum þar til þú biður okkur að hætta því og í stuttan tíma eftir það (til að gera okkur kleift að framkvæma beiðnina). Við skráum einnig hjá okkur að þú hafir óskað eftir að fá ekki sent beint markaðsefni eða að við vinnum ekki úr persónuupplýsingum þínum í ótakmarkaðan tíma svo við getum virt beiðni þína í framtíðinni. Í þeim tilvikum þar sem við vinnum úr persónuupplýsingum í tengslum við samninga eða þjónustu, eða vegna samkeppni, geymum við upplýsingarnar í 6 ár (að undanskildum greiðsluupplýsingum sem við geymum í 10 ár) frá síðustu samskiptum þínum við okkur. Við geymum upptökur af símtölum og úr öryggismyndavélum í tiltölulega skamman tíma, sem er ákvarðaður í samræmi við innri ferla okkar um reglufylgni sem við aðlögum af og til.

Breytingar hjá fyrirtækinu

Ef til þess kemur að fyrirtækið gangi í gegnum breytingar, svo sem samruna, yfirtöku af hálfu annars fyrirtækis eða ef fyrirtækið eða hluti eigna okkar verður seldur, munu persónuupplýsingar þínar líklega fylgja eignunum sem færast til annars aðila.

Skilmálar

Ef þú velur að heimsækja vefsvæði okkar fellur heimsókn þín og allur ágreiningur um persónuvernd undir þessa persónuverndarstefnu og skilmála okkar, þar á meðal, en takmarkast ekki við, afsöl ábyrgðar, takmarkanir á bótaábyrgðum eða gerðardóma deilumála. Ef þú hefur einhverjar spurningar um notkun persónuupplýsinga þinna skaltu senda okkur tölvupóst á gdpr@regus.com.

Persónuverndarréttindi þín í Kaliforníu

  • Viðbótartilkynning fyrir neytendur í Kaliforníu. Þessi hluti persónuverndarstefnunnar okkar gildir um neytendur sem eru búsettir í Kaliforníu. Þessi hluti gildir eingöngu um neytendur í Kaliforníu.
  • Við lýsum persónuupplýsingunum sem við höfum safnað frá neytendum á undanförnum tólf (12) mánuðum fyrir gildistökudagsetningu þessarar persónuverndarstefnu í þeim hluta persónuverndarstefnunnar sem ber titilinn „Gerð upplýsinga sem við söfnum og notum“. Þú finnur stefnuna í heild sinni hér.