Mulaberg, Hotel Kea
Mulaberg, Hotel Kea, Hafnarstraeti 87-89, Akureyri, 600, ISL
Heillaðu viðskiptavinina og virkjaðu teymið þitt í nútímalegu fundarrými á Mulaberg, Hotel Kea á Akureyri. Kynntu nýjar vörur, eigðu skapandi samstarf og settu fram frábærar hugmyndir í 300 m2 fullbúnu fundarsvæði sem þú lagar að þínum þörfum.
Gestirnir þínir munu heillast af einstöku umhverfi Mulaberg, Hotel Kea, sem er staðsett í einstaklega fallegu umhverfi við hringveginn. Eftir fundinn er hægt að tylla sér á veitingastaðinn á hótelinu til að slaka á, eða rölta yfir á einhver kaffihúsanna í grenndinni.
311 Borgarnes
311 Borgarnes, Bifröst, 310, ISL
Haltu næsta viðburð í hjarta hins fagra Borgarfjarðar í einstaklega nútímalegum fundarherbergjunum á Hótel Bifröst. Hvort sem þú þarft að taka á móti viðskiptavinum, halda ráðstefnu eða námskeið fyrir starfsfólkið eru sveigjanlegu rýmin okkar búin öllu sem þú þarft.
Njóttu fjölbreyttrar aðstöðu fyrir fundahöld. Ef gestir koma langt að er leikur einn að koma þeim fyrir í hótelgistingu auk þess sem feikinóg er af bílastæðum á staðnum. Þegar búið er að ganga frá öllum mikilvægum málum er yndislegt að ganga út í stórkostlega náttúruna eða slaka á með drykk á hótelbarnum.
Siglufjörður
Snorragötu 3 Siglufirði, Siglufirði, 580, ISL
Upplifðu sannkallað frelsi og sveigjanlega vinnuaðstöðu á þægilega vinnusvæðinu okkar á Siglufirði. Þú ræður hvort þú hefur þennan rólega og afkastahvetjandi stað út af fyrir þig eða kallar samstarfsfólk þitt til fundar í einhverju af fullbúnu fundarherbergjunum á staðnum.
Þú finnur einbeitinguna í þægilega opna vinnurýminu okkar, þar sem er næg náttúruleg birta og róandi útsýni yfir smábátahöfnina. Þegar þú vilt slappa af er tilvalið að fá sér göngutúr meðfram sjónum eða kíkja á barinn og veitingastaðinn á hótelinu.
Borgarbraut 59
Borgarbraut 59, Borgarnes, 310, ISL
Leyfðu metnaðinum að blómstra á björtum og notalegum vinnusvæðum okkar í flottu umhverfi B59 Hótels. Hér sést vítt og breitt yfir Borgarfjörðinn og fjallgarðana í fjarska og staðsetningin er fullkomin til að ná góðu jafnvægi í leik og starfi.
Haltu fyrirtækinu gangandi og nýttu þér sveigjanlega möguleika fyrir sameiginleg vinnusvæði, fallega hönnuð húsgögn og fullbúin fundarherbergi. Einnig er boðið upp á háhraða þráðlausa nettengingu og faglega þjónustu innanhúss. Þegar kominn er tími til að taka sér hlé geturðu hlaðið batteríin á hinum rómaða veitingastað B59 – eða jafnvel gert vel við þig í heilsulindinni.
Skrifstofupakkar með reglulegum aðgangi.
Skrifstofuaðildir bjóða upp á aðgang að staðsetningum í öllum stærstu borgum og bæjum. Lágt verð og sveigjanlegir skilmálar.
Lítið atvinnuleysi, mikil lífsgæði og fjölbreytt efnahagslíf gerir Ísland að vænlegum stað til að stunda viðskipti. Styrktu rekstur fyrirtækisins á skrifstofu með þjónustu sem veitir þér allt sem þú þarft til að ná langt hér.